hmmmm það er orðið langt síðan ég bloggaði síðast.... annaðhvort hlýt ég að eiga svona svakalega óspennandi líf.. eða þá að lífið mitt er allt of viðburðaríkt til að hanga fyrir framan tölvuna.... ef ég mætti velja myndi ég kjósa seinni kostinn..
jueves, diciembre 7
martes, septiembre 19
fjárdráttur er ekki dráttur á fé
í erli dagsins er ég mjög svo upptekinn við að vera upptekinn þar sem það er margt að gera fyrir tilvonandi kennara og búskaparkonu. Fór til dæmis um helgina að eltast við rollur uppá fjalli í staðinn fyrir að koma upp gardínum, þess vegna er enn hægt að sjá óvænt strípshow þegar gengið er um Grundarstíginn. Að vera meistari síns eigins heimilis reynist þó erfiðara en ég gerði ráð fyrir, hélt að hinni socialísku repressión væri lokið þegar ég flytti burt frá Baughúsunum en í staðinn kemur hún bara í heimsókn í formi foreldra. Gagnrýnin og aðfinnslusemin mun greinilega aldrei linna...
Að búa í pappakössum er líka erfið list, vissi ekki að ég ætti svona margar veraldlegar eigur þegar litið er til þess að mjög fáar af þeim eru gagnlegar (þá fyrir utan að halda á mér hita) Var þó kominn með ákveðna taktík og notaðist bara það næsta sem ég dró uppúr hinum og þessum kassanum og lét þar við sitja. Neyðin kennir latri konu að notast við ósamstæða sokka...
sábado, agosto 12
húsmóðir á þönum
Vika eftir af sumrinu mínu hérna á íslandi. Þegar ég kem tilbaka þá verður komið haust og skólinn byrjaður og ég þarf að byrja að flytja og kaupa gardínur.
Held að flest sölufolk í Byko og Húsasmiðjunni séu farin að þekkja mig með nafni þar sem ég æði um allt í leit að blöndunartækjum, borðplötum og svo mörgu mörgu öðru. Þessi klukkutíma hádegis-matarhlé sem að ég hélt fyrst að væru allt of löng hafa farið í það að bruna útum allar trissur í leit að hurðarhúnum eða málningu. Hef núna viku til þessa að finna allt og ákveða allt í einum grænum sem er auðveldara sagt en gert fyrir vog eins og mig. En þar sem að það er ekkert annað í boði en að setja allt í fullan gír þá verð ég bara að kaupa þennan eldhúsvask og sturtuhaus....
martes, agosto 1
þriðjudagur til þrautar
kl: 9:50
Jiminn.. ég er að geispa úr mér goluna ....
kl: 10:45
kaffibolli nr 4 að klárast
kl: 12:11
Krampar í maga vegna ofneyslu koffíns
kl: 14:30
ái ái æ... náladofi í litlu tá..
lunes, julio 31
Týndir Chilebúar og BSÍ kl 05:00
Chilebúarnir týndust... eða öllu heldur ég týndi chilebúunum..
Það er hægara sagt en gert að mæla sér mót við áttavillta Chilebúa með aðsetur í Árbæ og ætlast til að þeir geti hitt mann í kringlunni á ákveðnum stað á ákveðnum tíma. Sérstaklega þegar ég sjálf mundi ekki að kringlan á sunnudögum opnar víst kl:13.00 en ekki klukkan 10:00 eins og ég tilkynnti alviss.
Eftir að hafa svo ætt um í panic kasti um þessa búllu sem kringlan er, keyrt allaleið uppí Árbæ til að athuga hvort að þau hefðu bara neitað að fara út úr húsi í rigningunni. Búin að þræða alla strætóleiðina í von um að sjá 3 litla blauta og villta chilebúa vafrandi um göturnar þá hlunkaðist ég niður á kaffihús í búllunni og fékk mer súkkulaði og kakó. Gerði svo eins og allar fullorðnar stelpur í mínum sporum hefðu gert, hringdi í mömmu!
Gerði eina tilraun í viðbót og rúntaði niður laugarveginn í von um að sjá mjög svo blaut og svört höfuð, þá á leiðinni heim ákvað ég að gera enn eina lokatilraun og labbaði aftur í gegnum búlluna, og viti menn, sá ég ekki Ivan vera að svipast um eftir mér á meðan mamman og Italo sátu á bekk og sleiktu ís.
Daginn áður fórum við gullna hringinn og sáum allt sem að túristar þurfa að sjá, og voru þau svo uppnumin af landi og þjóð að þau eru að hugsa um að gerast nágrannar mínir í náinni framtíð... það er; ef að ég redda þeim öllum vinnu og húsnæði...
Ferðin endaði svo með því að mjög þreyttur pési mætti á svæðið heim til Dóru frænku klukkan fimm í morgun og keyrði þau á náttbuxunum út á BSÍ, þar sem var lofað með fögrum orðum að allir skyldu nú hittast aftur...
Eftir þessa ferð held ég að túristaleiknum mínum í sumar sé lokið, orka ekki meir, algjörlega búin á því að vera að þjónusta týnda útlendinga.
Reyndar kanski smá galli á gjöf njarðar að það er það sem ég einmitt geri og vinn við alla daga....
miércoles, julio 26
Chillararnir mættir
Pakkinn sem býður framundan lætur dagana verða eins og agnarlitla maura sem ekki er hægt að greina í sundur. Allt í einu er kominn miðvikudagurinn 26 júlí. Chilenska mafían mætir á klakann á morgun og fyrir algjöra tilviljun kemur hún á sama tíma með sama flugi og Krístin, norsk/íslenska vinkona mín. Ég hef ekki alveg náð að finna útúr því hvernig ég ætla að snúa mér í þessu máli með chillarana þar sem að þau létu mig vita með einnar viku fyrirvara að komu þeirra væri að vænta fimmtudaginn 27 júlí, sem sagt á morgun. Þau báðu mig svo svona í leiðinni að finna ódýra og góða gistingu handa þeim í Reykjavík á há annatíma.. mér tókst það með því að senda Dóru Frænku í pössun til ömmu og taka undir mig kastalann hennar...
Ég óska sem sagt líka hér með eftir pössunarpíum og guttum sem taka að sér að sýna chilenskri fjölskyldu smá af undrum Íslands þar sem að undirrituð er víst að vinna þessa daga. Þeim þykir ákaflega gaman að tala chilensku og labba um, þurfa ekki mikið aðahald og borða með hnífapörum... Ef einhver bíður sig fram þá veit hann hvar mig er að finna..
Jæja...
Jæja nú er ég sem sagt búin að gefast upp á sumrinu á Íslandi og til að forða mér frá manic depression og bjarga geðheilsunni í vetur, þá ætla ég enn einu sinni að flýja land, þó í skamman tíma. Verður ferðinni aftur heitið til Noregs þar sem ég mun vonandi fá vítamínin frá sólinni sem mig er farið að skorta all verulega.
jueves, julio 13
samsæriskenning
Jæja loksins er komið sumar og loksins ákvað ég að eyða því á Íslandi. Það er, eftir endalausar hringingar frá vinum og vandamönnum sem rómuðu hið íslenska frábæra sumar. En svo spyr hún Gunna sig, hvar er þetta blessaða sumar? Er búin að öfunda vini mína af sólríkum dögum á austurvelli þar sem þeir hafa sleikt ís og drukkið bjór, farið í sund og útileigur.
Nú er sumarið hálfnað og það næsta sem ég hef komist þessarri sýn er að hlaupa laugarveginn við fót. Strögglandi á móti vindi sem feykir upp pilsinu, skjálfandi af kulda vegna bráðnandi issins standandi í rigningunni, og ALEIN. Þar sem að allir þessir blessaðir vinir mínir sem plötuðu mig með gjöfulum lýsingarorðum til að upplifa sumarið á Íslandi stungu allir af. Og ef að þeir eru ekki í útlandinu þá eru þeir í ástarhugleiðingum og alveg jafn erfitt að ná í þá, svo ekki sé talað um stúlkuna sem varð bara ó-frísk.
Ég er komin að þeirri niðurstöðu að allir hafa bara verið að plata mig í gegnum árin og sumarið á Íslandi hafi alltaf verið stórt Crap
